logo heimspeki vísindi og trú
haus
Forsíđa
Um SRFI
Myndir
Gjafabréf
Hafa samband
Fyrirbćnir
Liđnir atburđir
Áheit
Fróđleikur
Til Minningar
Guđmundur Einarsson
Amý Engilberts
Starfandi miđlar
Á döfinni
Tenglar
  Visa & Mastercard
logo
  Minningarkort
Á skrifstofu SRFÍ er hćgt ađ fá keypt minningarkort félagsins.
Til Minningar
myndMinning.

Þegar minnast á Guðmundar Einarssonar, kemur fyrst upp í hugann þessi glaðværi trausti maður, sem hafði langa reynslu og mikla af sálarrannsóknum.
Því var það okkur hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands mikill fengur að fá að starfa með honum. Guðmundur hafði áratuga reynslu sem forseti og stjórnarmaður S.R.F.Í. Guðmundur Sótti fundi og ráðstefnur fyrir félagið í mörg ár, þar sem hann kynntist mörgum góðum og færum miðlum sem hann fékk til landsins til að vinna og kynna fyrir okkur það nýjasta í miðilsskap, var það ómetanlegt.
Leysti hann öll þessi störf af miklum áhuga og ljúfmennsku. Við sem kynntumst honum og vorum með honum í stjórn félagsins nutum þeirra forréttinda að heyra hann segja  með sinni sérstöku rödd og áherslum reynslusögur og rannsóknir sálarrannsókna. Guðmundur var fulltrúi Sálarransóknarfélags Íslands í mörgum útvarps, sjónvarpsþáttum og á öðrum vettvangi og var hann verðugur fulltrúi þess.
Við hjá Sálarrannsóknarfélagi Íslands sendum fjölskyldu hans og ættingjum innilegar samúðarkveðjur.

mynd

Minning.

Bjarni Kristjánsson, miðill og huglækir, er látinn, eða fluttur eins og Þórunn Maggý Guðmundsdóttir, miðill, orðar það. Bjarni hafði starfað með Sálarrannsóknarfélagi Íslands í rúm átta ár, þegar hann lést þann 7. júlí 2002.

Við sem störfuðum með Bjarna og áttum samskipti við hann innan félagsins hörmum fráfall hans, ekki einungis vegna þess að hann var afar góður miðill og huglæknir, heldur jafnframt vegna þess hversu góður vinnufélagi hann var.

Bjarni var hvers manns hugljúfi, glaður og jákvæður og ekki síst afar nærgætinn og tillitssamur.

Stjórn og starfsfólk SRFÍ þakkar Bjarna fyrir hans ómetanlega þátt í starfi félagsins.


 

Þín náðin, Drottinn, nóg mér er,
því nýja veröld gafstu mér,
í þinni birtu' hún brosir öll,
í bláma sé ég lífsins fjöll.

Ég veit, að þú ert þar og hér,
hjá þjóðum himins, fast hjá mér,
ég veit þitt ómar ástarmál
og innst í minni veiku sál.

Ef gleðibros er gefið mér,
sú gjöf er, Drottinn, öll frá þér,
og verði' af sorgum vot mín kinn,
ég veit, að þú ert faðir minn.

Þín náðin, Drottinn, nóg mér er,
því nýja veröld gafstu mér.
Þótt jarðnesk gæfa glatist öll,
ég glaður horfi' á lífsins fjöll. 

Einar H. Kvaran

 

Sálarrannsóknarfélag Íslands | Garđastrćti 8 | 101 Reykjavík | Sími 551-8130 | srfi[hjá]srfi.is